
Matvælatæknifyrirtækið JBT Marel og færeyska fiskeldisfyrirtækið Bakkafrost hafa unnið saman að þróun næstu kynslóðar snjalllausnar fyrir slægingu eldislax, sem hefur fengið nafnið EVi. Heitið EVi stendur fyrir „eiscering intelligence”, sem snara mætti yfir á íslensku sem “snjall-slæging” eða “vit-verkun”.
Þessi nýja aðferð við fiskverkun er niðurstaða vel heppnaðs samstarfs, óslökkvandi forvitni og gagnkvæmrar löngunar þessara tveggja aðila til að stuðla að umbótum í faginu.
JBT Marel sýnir á IceFish 2026 í sýningarbás B10, þar sem gestir geta barið þessa nýjung augum og fjölmargar aðrar sem fyrirtækið hefur á boðstólum.
Á bak við þróun EVi
Andrias Petersen, framkvæmdastjóri fiskvinnslu hjá Bakkafrosti, frétti að JBT Marel væri að vinna að nýjum vélbúnaði fyrir slægingu og setti sig í samband við forsvarsmenn þar á bæ. Eftir að hafa glöggvað sig á fyrirliggjandi hugmyndum áttaði hann sig á að EVi gæti veitt Bakkafrosti þann sveigjanleika við fiskverkun sem fiskeldisfyrirtækið var á höttunum eftir. Bakkafrost gerðist í kjölfarið samstarfsaðili verkefnisins með því að setja tækjabúnaðinn upp í fiskeldisstöð sinni til raunprófana.
Hvernig er EVi frábrugðin öðrum lausnum?
EVi verkar lax sjálfvirkt með aðstoð snjalltækni, sem skilar fiskeldinu auknum gæðum og bættum afköstum.
„Allar slægingarvélar þurfa að verka og hreinsa laxinn eins vel og nokkur er kostur,“ segir Andrias. „EVi er ögn frábrugðin öðrum slægingarvélum á markaði, að því leyti að í henni er að finna tvær brautir fyrir slægingarferlið. Fyrir vikið fáum við lengri tíma til að slægja og hreinsa fiskinn á sem bestan hugsanlegan hátt, án þess að þurfa að óttast að hann verði fyrir skemmdum af völdum vélbúnaðar. Þetta er ótvíræður kostur.”
Inntakskerfi búnaðarins staðsetur og stillir af hvern fisk með traustu og öruggu utanumhaldi. Með því að hægja á ferlinu og bæta við samanþjöppuðu, samsíða flæði bætir tvíhliða kerfið nýtingu og gæði verkunarinnar, en uppfyllir jafnframt þörfina fyrir hraðari og jafnari afköst.
Nútímavinnsla sjávarfangs og annarra matvæla er stöðugt háðari stafrænum tækjum sem safna gögnum í því markmiði að gefa gleggri sýn á reksturinn, fylgjast með afköstum og tryggja fullan rekjanleika. Hægt er að tengja samþættan hugbúnaðinn í EVi hnökralaust við bæði upptöku aflans og útstreymi, til að unnt sé að stjórna og fylgjast með öllu ferlinu. „Vegna þess hversu vel tækið slægir fiskinn og færir okkur samtímis gögn um vinnsluferli og afköst, skapar það verðmæti fyrir okkur,” segir Andrias.
Til að mæta þörfum iðnaðarins
JBT Marel hefur frá upphafi þróað EVi í þeim tilgangi að færa vinnslustöðvum tækjabúnað sem eykur í senn afköst og gæði. Lykilþáttur í þeirri þróun er sjónkerfið, sem skannar hvern einasta fisk þegar hann kemur inn í EVi til að ákvarða nákvæmlega stærð hans og gerð. Slægingartækin stilla sig sjálfkrafa til að vinna hvern fisk í hæsta gæðaflokki.
AQi, háþróuð einkaleyfisvernduð sjóntækni, greinir einnig alla hugsanlega galla sem finna má á verkuninni og flytur fiska sem þarfnast frekari skoðunar til viðeigandi meðhöndlunar.
„EVi er hannað til að hver einasti fiskur fái þann tíma og nákvæmni í vinnslu sem hann þarfnast, til að niðurstaða verkunarinnar sé framúrskarandi,“ sagði Gunnhildur Ómarsdóttir, vörustjóri hjá JBT Marel.
Vélar sem slægja eldislax þurfa að þola óblíðar aðstæður og vera nægjanlega öflugar til að afgreiða milljónir fiska á starfstíma sínum. Öll ófyrirséð hlé á vinnslu eru kostnaðarsöm og stofna í hættu verðmætu hráefni. Þess vegna þótti JBT Marel brýnt að smíðin á EVi væri traustbyggð og búin öryggisráðstöfunum sem tryggja að lágmarki 50% afkastagetu búnaðarins, jafnvel þá sjaldan að upp komi bilanir.
Samstarf er lykilþáttur vel heppnaðrar nýsköpunar
Vinnslustöðvar eldislax standa frammi fyrir fjölmörgum áskorunum í greininni og þurfa að mæta vaxandi eftirspurn eftir sjálfbærum afurðum í topp gæðum.
„Það er ótrúlega mikilvægt að atvinnugreinin bryddi sjálf upp á aðferðum til að bæta vinnsluferlið,“ segir Andrias. „Í samstarfi okkar við JBT Marel höfum við notið þeirra forréttinda að fulltrúar fyrirtækisins hlusta grannt á hugmyndir okkar, óskir og tillögur og taka mið af reynslu okkar af sjálfri framleiðslunni.”
Um leið og EVi var tilbúið til raunprófana hófst náin samvinna á milli starfsmanna Bakkafrosts og forritara JBT Marel. Það samstarf gegndi lykilhlutverki til að hægt væri að ná því markmiði að EVi stæðist ítrustu kröfur daglegs rekstrar í vinnslu eldislax.
Til að fá frekari upplýsingar um hvernig heppilegast er að sýna á IceFish 2026 er best að hafa samband við teymið okkar með því að senda tölvupóst á netfangið: ttattum@mercatormedia.com.




