Íslenski sjávarklasinn hefur nú tryggt sér fjármögnun sem gerir þessari stórhuga nýsköpunarmiðstöð í bláa hagkerfinu kleift að móta og styrkja starfsemi sína næstu þrjú til fimm árin. Alexandra Leeper, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans, segir að miðstöðin geti fyrir vikið beitt sér með auknum krafti að því framfaramáli að lágmarka þá gríðarlega sóun sem viðgengst víða í sjávarútvegi heimsins. Nú er áætlað að tæp 24 milljón tonn af sjávarfangi fari til spillis árlega á heimsvísu, hráefni sem gæti nýst í verðmætar hliðar- og aukaafurðir. Alexandra kveðst telja þessa miklu sóun hreinlega ósiðlega.
World Fishing hefur að undanförnu grennslast fyrir um hvað ber hæst þessa dagana hjá samstarfsaðilum og sýnendum á IceFish, og það er sannarlega margt á döfinni hjá Íslenska sjávarklasanum. Þar á meðal hafa tveir nýir starfsmenn verið ráðnir til að styðja við bakið á þeim 60 fyrirtækjum sem staðsett eru í höfuðstöðvum klasans við Grandagarð í Reykjavík. Þeir eiga m.a. að bæta þjónustuna við sístækkandi hóp sprotafyrirtækja sem vinna að nýsköpun í anda hugmyndafræðinnar um 100% nýtingu sjávarfangs, eða 100% Fish einsog verkefnið nefnist á ensku, sem og að útrýmingu sóunar í sjávarútvegi.
Alþjóðlegt starf Íslenska sjávarklasans fer einnig hratt vaxandi. „Það er mikilvægt að hlúa að tengiliðum og samstarfsaðilum okkar hér á Íslandi og þá ekki síður að meðlimum klasans, en þeir eru fjölbreyttur hópur fyrirtækja sem standa framarlega í nýsköpun í bláa hagkerfinu hérlendis. Með því að efla innlendu tengslin erum við betur í stakk búin til að færa út kvíarnar á alþjóðavettvangi, og tryggjum að jafnvægið á milli þessara þátta starfseminnar sé ákjósanlegt,” segir Alexandra.
Nýverið skrifuðu Skinney-Þinganes og Íslenski sjávarklasinn undir samkomulag um samstarf á sviði fullnýtingar sjávarafurða. Alexandra leggur áherslu á að stöndug og traust útgerðarfyrirtæki á borð við Skinney-Þinganes verði að vera virkir þáttakendur í hjarta hugmyndafræðinnar um 100% nýtingu sjávarfangs, og stuðla að framkvæmd hennar í verki.
Ef litið er út fyrir landsteinana má nefna að klasinn hefur um skeið unnið með grænlenska útgerðarfyrirtækinu Royal Greenland að verkefni sem nefnist „100% Shrimp“, en það miðar að því að hámarka verðmæti aukaafurða rækjuvinnslu með því að nýta þær í heilsu-, lyfja- og matvælaiðnaði. Norræna nýsköpunarmiðstöðin styrkir það samstarf og lýsir Alexandra því sem góðri fyrirmynd að því að sýna fram á viðskiptalegt gildi fullnýtingar.
„Við sjáum það sífellt oftar að fiskveiðiheimildir eru skertar, sem eykur mikilvægi þess – í viðskiptalegu tilliti – að skapa meira úr minna,” segir hún. „Það hafa alla tíð verið veigamiklar umhverfislegar röksemdir fyrir 100% nýtingu sjávarfangs, en núna snýst þetta líka um rekstrarafkomu fyrirtækja í sjávarútvegi.“
Gervigreind og bláa hagkerfið
Hún segir að aðstandendur Íslenska sjávarklasans hafi að undanförnu orðið áþreifanlega varir við stóraukið vægi gervigreindar í bláa hagkerfinu. „Gervigreind er auðvitað hvarvetna í brennidepli umræðunnar, og sérstaklega varðandi fjárfestingar og þá möguleika sem hún gæti skapað fyrir sjávarútveginn, fyrir meðlimi klasans og fyrir Ísland í heild sinni,“ sagði Alexandra.
„Við höfum verið að kanna á hvaða sviðum við getum helst tekið forystuna og þegar horft er til notkunar gervigreindar blasir við að Ísland er eyþjóð sem er auðug af orku, býr yfir öflugum gagnaversiðnaði og státar af næsthraðasta Neti í öllum heiminum. Á Íslandi er einnig starfandi mikið af fagfólki með sérhæfingu í gervigreind. Íslenski sjávarklasinn kappkostar ævinlega að standa í miðju umræðunnar um þau málefni og nýjungar sem þykja snjöllust og veigamest í bláa hagkerfinu. En ég tel einnig að gervigreindin sé vettvangur sem veiti Íslandi og Íslendingum óþrjótandi tækifæri til að gegna leiðandi hlutverki á heimsvísu,” segir Alexandra.
Hún segir ennfremur fjömörg tækifæri felast í uppbyggingu Græna iðngarðsins í Helguvík, sem nefnist á ensku Iceland Eco-Business Park. Þar verða staðsettir undir einu þaki klasar fyrirtækja sem starfa innan græna hagkerfisins og hringrásarhagkerfisins. Græni iðngarðurinn er stofnaður af þeim Þóri Sigfússyni, hugmyndasmið og stjórnarformanni Íslenska sjávarklasans, og Kjartani Eiríkssyni, núverandi framkvæmdastjóra garðsins, og verður hann rekinn á grundvelli þeirra gilda sem Íslenski sjávarklasinn stendur fyrir.
Fyrir skömmu fékk norrænt samstarfsverkefni fjármögnun, en tilgangur þess er að tengja klasamiðstöðvar hérlendis saman við aðrar sambærilegar stöðvar í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Í því samstarfi er Græni iðngarðurinn í forgrunni sem fyrirtaks dæmi um vel heppnaða útfærslu á samþættingu tilraunavettvangs og nýsköpunarstarfsemi sem helguð er vistkerfum heimsins.
„Markmiðið er að búa til heildstætt nýsköpunarferli, þar sem sprotafyrirtæki ásamt litlum og meðalstórum fyrirtækjum geta þróað, prófað og styrkt nýja tækni og viðskiptalíkön,” segir Alexandra.
Blue Nova Ventures og alþjóðleg leit að frumkvöðlum
Þróun slíkra nýsköpunarferla tengist m.a. Blue Nova Ventures (BNV), vísissjóði sem Íslenski sjávarklasinn setti á laggirnar á seinasta ári til að brúa fjármögnunarbil í rekstri sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu. Blue Nova Ventures vinnur nú að áframhaldandi fjármögnun, ásamt því að að stýra verkefni sem miðar að því að finna vítt og breitt í heiminum áhrifamikla frumkvöðla í bláa hagkerfinu og fá þá til samstarfs. Nýlegt dæmi um slíkar tengingar er samstarf á milli sjóðsins og Cascadia í Bandaríkjunum, við norðvesturhluta Kyrrahafsins, en það verkefni lýtur að nýtingu svæðisbundinna styrkleika á sviði gagnasöfnunar um lífríki hafsins, líftækni í sjávarútvegi og sjálfbærum fiskveiðum.
„Þetta verkefni veitir okkur aukinn skilning á því hvaða breytingavaldar vega þyngst, og virkar einnig sem segull fyrir systurklasana okkar,” segir Alexandra.
Nú eru systurklasarnir alls tólf talsins, eftir að sjávarklasi sem staðsettur er í Queensland í Ástralíu bættist í hópinn fyrir stuttu. Systurklasarnir gegna lykilhlutverki í alþjóðlegri stefnumörkun Íslenska sjávarklasans. Sífellt fleiri lönd vilja stofna eigin sjávarklasa eða þróa áætlanir um fullnýtingu sjávarfangs og horfa til Íslands í því sambandi, sem hefur opnað nýjar dyr fyrir starfsemina hér. Íslenski sjávarklasinn fékk nýverið stærsta styrk sem hann hefur hlotið frá upphafi starfsemi sinnar, og er styrkurinn frá Builders Vision, bandarískum sjóði sem Lucas Walton stofnaði, en hann er barnabarn Sam Walton sem oftast er kenndur við Walmart-verslunarkeðjuna. Þessi styrkur markar vendipunkt fyrir 100% Fish verkefnið, og gefur Íslenska sjávarklasanum m.a. kost á að útbúa sérstaka handbók, sem kallast „100% Fish Playbook“.
Handbókin mun innihalda skrásetningu og flokkun á bestu hugsanlegu aðferðum sem fyrirfinnast í heiminum til að ná fram markmiðum um fullnýtingu sjávarfangs, hvernig útrýma má sóun, hvaða útfærsla hentar best mismunandi svæðum heimsins og hvernig byggja má upp og rækta viðskiptahliðina á sjálfbærri fullnýtingu vistkerfa.
„Þetta er handbók fyrir leiðtoga 100% nýtingar vistkerfa, vegvísir til að auðvelda þeim starfið,” segir Alexandra.
Fjárstuðningurinn frá Builders Vision gerir Íslenska sjávarklasanum einnig fært að bjóða fjórum völdum leiðtogum á sviði sjálfbærrar nýtingar vistkerfa til árs langrar dvalar hér á landi. Meðan á dvölinni stendur tileinka þeir sér til hins ýtrasta allar þær hugmyndir og aðferðir sem liggja að baki 100% Fish verkefninu, og geta í framhaldinu miðlað þeim áfram og hrint í framkvæmd á sínum eigin heimaslóðum. Langtímamarkmið þessarar starfsdvalar fyrir leiðtoga í bláa hagkerfinu er að skapa alþjóðlegt tengslanet fyrrum þátttakenda, sem hefur fengið heitið „100% Fish Champions“. Tengslanetið mun einnig nýtast við þróun nýsköpunarfyrirtækja og vera í nánu samstarfi við Blue Nova Ventures.
„Í raun snýst þetta um að miðla aðferðafræði og byggja upp stærra samfélag en við höfum áður getað gert, ásamt því að styrkja tengingar á alþjóðavettvangi,” segir Alexandra.
Alþjóðleg hreyfing sem teygir sig í margar áttir
Alexandra leggur áherslu á að kraftimikil útbreiðsla hugmyndafræðinnar um fullnýtingu sjávarfangs krefjist þess að flæði þekkingarinnar að baki henni streymi óhindrað í margar mismunandi áttir.
„Þetta snýst ekki bara um að flytja út íslenska þekkingu. Þetta snýst um miðlun þekkingar úr öllum áttum og til allra átta. Það þarf að sækja innblástur til frumkvöðla sem starfa í ólíkum vistkerfum svo við séum ekki að reyna að finna upp hjólið aftur,“ segir hún. Til marks um þá þróun er að nokkrir systurklasar Íslenska sjávarklasans eru nú þegar að þróa viðskiptalíkön og kortleggja tekjumöguleika í fullnýtingu sjávarfangs á sviðum sem klasinn hérlendis hefur ekki enn kannað sjálfur.
Alexandra segir að með því að tengja saman sjávarklasa, leiðtoga og frumkvöðla í nýtingu vistkerfa á alþjóðavísu, geti sum svæði heimsins þróað verkefni sín með auðveldari og hagkvæmari hætti en ella, og stokkið yfir fyrstu tilraunastigin með því að styðjast við tækni og aðferðafræði sem hefur þegar sannað notagildi sitt annars staðar.
Alexandra segir ómögulegt að spá fyrir um hvar verkefnið um fullnýtingu sjávarfangs verði statt eftir nokkra áratugi. Óskaniðurstaðan í hennar huga sé þó að fleiri rótgróin vistkerfi njóti sjálfbærrar nýtingar, að þéttriðið net þekkingarmiðlunar verði starfrækt, og að sífellt stærri hópur alþjóðlegra leiðtoga vinni markvisst og með árangursríkum hætti að því að hindra, eða hafi jafnvel þá þegar hindrað, að tæp 24 milljón tonn af sjávarfangi fari til spillis á hverju ári eins og raunin er í dag.
Myndin sýnir: CEO Icelandic Ocean Cluster, Alexandra Leeper




