
Nú er búið að opna á skráningu fyrir hin virtu Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaun 2026, en afhending verðlaunanna er ávallt einn helsti hápunktur IceFish-sýningarinnar. Verðlaunin heiðra framúrskarandi árangur í nýsköpun, sjálfbærni, fiskveiðum, fiskeldi og sjávarréttaframleiðslu.
Verðlaunin í ár munu heiðra bæði íslensk og alþjóðleg fyrirtæki og einstaklinga.
Verðlaunin verða afhent í Salnum, Kópavogi, þriðjudaginn 22. september nk.
Að afhendingu lokinni geta gestir notið góðrar stundar með öðrum sýnendum og sérstökum boðsgestum.
Óskað er eftir tilnefningum fyrir fyrirtæki og aðra aðila í eftirtölum verðlaunaflokkum:
Nýsköpun í fiskveiðum
Nýsköpun í vinnslu
Nýsköpun í fiskeldi. Þessi verðlaunaflokkur er styrktur af Arion banka.
Nýsköpun í fullnýtingu sjávarfangs
Besta nýja varan sem er kynnt á IceFish
Besta sprotafyrirtækið, bæði íslenskt og alþjóðlegt
Hægt er að tilnefna einstaklinga í flokkunum Framúrskarandi skipstjóri á Íslandi, verðlaunaflokkur styrktur af Vónin, og Heiðursverðlaun fyrir ævistarf (íslenskt), verðlaunaflokkur styrktur af Hampiðjunni.
Til að tryggja að samstarfsaðilar þínir og fyrirtæki hljóti verðskuldaða viðurkenningu, tilnefndu núna á vefsíðu IceFish.
Til að koma til greina í flokknum Nýsköpun gilda aðeins tvær einfaldar reglur:
· Búnaðurinn, þjónustan eða skipið sem eru tilnefnd þurfa að hafa verið sett á markað á tímabilinu frá síðustu IceFish-sýningu (20. september 2024).
Tilnefndir þættir verða að hafa komið á markað innan þess tímaramma.
· Tilnefnd framlög verða að vera nýjung (ekki einungis endurbót á vöru).
Allir sýnendur á IceFish eða starfsmenn sýnenda geta lagt fram tilnefningar eða hlotið tilnefningu. Tilnefningum verður að skila inn fyrir 14. ágúst nk.
Heimsóttu vefsíðu Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaunanna til að fá frekari upplýsingar, til að tilnefna og tryggja þér miða á þetta ómissandi kvöld: IceFish Awards website.



