Íslensku sjávarútvegsverðlaunin mörkuðu upphaf spennandi árs fyrir GreenFish
27. október 2026Eftir IceFish Press PR
GreenFish
Deila þessari grein
GreenFish, sem hlaut Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2026 í flokki nýsköpunar, hefur nú tilkynnt um nýjan merkisáfanga í sögu fyrirtækisins, aðeins örfáum vikum eftir að IceFish-sýningin var haldin.
Íslenska tæknifyrirtækið GreenFish hefur undirritað samstarfssamning við Supratechnic, sem er hluti af USP Group Ltd., um að koma Afla, nýju smáforriti GreenFish fyrir smábátaútgerðir, á markað í Malasíu, Singapúr og Indónesíu.
Afli byggir á grunntækni GreenFish sem sameinar gervigreind, gervihnattagögn og veiðigögn til að spá fyrir um hvar fisk er að finna. Afli bendir á líklegustu veiðimiðin og hjálpar þannig sjómönnum til að finna fiskinn fyrr og tryggja hámarksnýtingu tíma í hverri veiðiferð. Í samningnum felst að Afli verður hluti af ókeypis tilraunaverkefni fyrir 50 sjómenn, sem stendur yfir á monsún-tímabilinu. Kerfið býður upp á öryggiseiginleika, svo sem viðvörun til tengiliðs í landi ef ferð dregst á langinn, ásamt neyðarhnappi.
„Hver einasti sjómaður ætti að geta komið heim heilu og höldnu úr veiðiferð, með góðan afla. Afli nýtir gervigreind til að miðla spám í gegnum símann sem sjómennirnir hafa nú þegar meðferðis, og styðst þannig við þá þekkingu sem þeir hafa safnað kynslóð eftir kynslóð,“ segir Melvin Tan, forstjóri Supratechnic. Samstarfið gefur jafnframt vísbendingar um möguleika á frekari þróun, að sögn Baldurs S. Blöndals, rekstrarstjóra GreenFish. „Afli hefur nú þegar vakið athygli, bæði í Kína og hér heima á Íslandi. Það er ánægjulegt að sjá verkefni sem við höfum þróað í sameiningu fyrir sjómenn í Suðaustur-Asíu vekja áhuga langt út fyrir það svæði. Vonandi er þetta fyrirboði um það sem koma skal!“