Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin (IceFish), sem haldin verður dagana 22.-24. september nk, veitir enn á nýjan leik styrki til nemenda í sjávarútvegsfræðum á Íslandi. Námsstyrkir IceFish hafa verið veittir allt frá árinu 2017. Forsvarsmenn IceFish komu styrkjunum á laggirnar í því skyni að fjárfesta í framtíð sjávarútvegarins á Íslandi, og til marks um skuldbindingar þeirra við og virðingu fyrir íslensku sjávarútvegs- og atvinnulífi.
Styrkirnir eru ætlaðir þeim nemendum sem hafa lokið prófi í fisktækni eða sambærilegu námi í sjávarútvegsgreinum, vinnslutækni eða fiskeldistækni, og hyggja á framhaldsnám við Fisktækniskóla Íslands á vorönn 2026.
Styrkirnir eru veittir til eins árs náms.
Þrír styrkir eru veittir einstaklingum, hver að upphæð 300.000 krónur. Styrkirnir eru ætlaðir til greiðslu kostnaðar framhaldsnáms í einhverri af eftirfarandi námsgreinum við Fiskiskóla Íslands:
a) Marel vinnslutækni
b) Gæðastjórnun
c) Fiskeldistækni
Nánari upplýsingar um ofangreind nám er að finna á vefsíðunni www.fiskt.is.
Umsækjendur þurfa að veita upplýsingar um árangur sinn í grunnnámi, fyrri námi og verklegri færni. Þeir þurfa einnig að veita upplýsingar um starfsreynslu og áfom sín um framtíðarnám eða störf.
Umsóknirnar verða teknar fyrir af ráðgjafarhópi sem skipaður er fulltrúum frá Fisktækniskóla Íslands, Marel, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Landssambandi smábátaeigenda, ásamt fulltrúum frá Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni (IceFish).
Þeir sem hljóta námsstyrkina munu fá þá afhenta við sérstaka viðurkenningarathöfn í mars. Þeim verður einnig boðið að sækja hina glæsilegu opnunarathöfn IceFish, sem haldin verður á fyrsta degi sýningarinnar, þriðjudaginn 22. september nk.
Meiri upplýsingar:
https://icefish.is/newfront/page/icefish-bursary-2026
Umsóknarfrestur rennur út 15. febrúar 2026.




