Íslensku sjávarútvegsverðlaunin heiðra framúrskarandi árangur
22. september 2026Eftir Press PR
Deila þessari grein
Einn af hápunktum IceFish 2026, sem margir höfðu beðið eftir, fór fram í gærkvöldi þegar fagnað var nýsköpun, nýjungum og árangri í fiskeldis- og sjávarútvegi.
Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaunin voru veitt í tíunda skipti í gærkvöldi að viðstöddum góðum gestum, þar á meðal Hönnu Birnu Friðriksson atvinnuvegaráðherra, en hún setti einnig IceFish-sýninguna í gærmorgun. Verðlaunaafhendingin fór fram í Salnum í Kópavogi. Einnig var viðstaddur Keizo Takewaka, sendiherra Japans á Íslandi.
Í fyrsta skipti á Íslensku sjávarútvegsverðlaununum voru veitt verðlaun fyrir ævistarf, og var niðurstaða dómnefndar að úthluta þeim sameiginlega til tveggja einstaklinga. Örn Pálsson og Arthur Bogason, fyrrverandi framkvæmdastjóri og fyrrverandi formaður Landssambands smábátaeigenda, fengu þau fyrir langvarandi framlag þeirra félaga til íslensks sjávarútvegs og góðs samstarfs við IceFish-sýninguna um áratugaskeið. Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar afhenti verðlaunin við dynjandi lófatak viðstaddra.
Annar eftirminnilegur viðburður kvöldsins var þegar Theódór Elvar Haraldsson skipstjóri hlaut verðlaun sem framúrskarandi íslenskur skipstjóri. Theódór Elvar og áhöfn hans á Barða NK 120, skipi Síldarvinnslunnar, hlutu þessa viðurkenningu fyrir „framúrskarandi viðbrögð við alvarlegum háska á sjó“. Um er að ræða sprengingu og eldsvoða sem varð um borð í vélarrúmi Barða í júní sl. eftir brottför frá Færeyjum.
Áður höfðu verið veitt nýsköpunarverðlaun í flokkunum veiðar, vinnsla, fiskeldi og fullnýtingu sjávarfangs. Verðlaunin hlutu Momoi Fishing Net MFG. Co. fyrir Ecoloop-verkefnið, Evi-laxahreinsivél JBT Marel, BioSeize-kerfi Hampiðjunnar og „100% Great Lakes Fish Initiative“-verkefnið. Þá hlutu Ration viðurkenningu fyrir RationFEED í flokki nýsköpunar í fiskeldi og Havdis viðurkenningu fyrir verkefnið „Unlocking the Healing Power of Atlantic Cod Milt“, sem felst í að virkja græðandi eiginleika þorsksvila úr Atlantshafi, í flokki nýsköpunar í fullnýtingi sjávarfangs.
Einnig voru veitt verðlaun fyrir bestu nýju vöruna sem kynnt er á IceFish, en þau hlaut Mikra-ígulkerasögin, og verðlaun fyrir besta nýja sprotafyrirtækið, sem fóru til GreenFish fyrir tækni sem býr til gagnaknúin spálíkön fyrir veiðar.